Lykilorð
PIN- eða PIN2-
númer
(4-8 tölur)
Þessi númer koma í veg fyrir að SIM-kortið sé notað í
leyfisleysi eða eru nauðsynleg til að fá aðgang að
tilteknum eiginleikum.
Hægt er að stilla símann þannig að hann biðji um PIN-
númerið þegar kveikt er á honum.
Ef númerin fylgja ekki með kortinu eða þú gleymir þeim
skaltu hafa samband við þjónustuveituna.
Ef þú slærð númerið rangt inn þrisvar sinnum í röð þarftu
að opna það með PUK- eða PUK2-númerinu.
PUK- eða PUK2-
númer
(8 tölur)
Slíkt númer er nauðsynlegt til að opna PIN- eða PIN2
númer.
Hafðu samband við þjónustuveituna ef þessi númer
fylgja ekki með SIM-kortinu.
IMEI-númer
(15 tölur)
Númerið er notað til að auðkenna gilda síma í símkerfinu.
Einnig er hægt að nota númerið til að loka stolnum
símum, svo dæmi sé tekið. Þú gætir einnig þurft að gefa
Nokia Care-þjónustuveri upp númerið.
Hægt er að sjá IMEI-númerið með því að hringja í *#06#.
Lásnúmer
(öryggisnúmer)
(að lágmarki 5
tölustafir)
Númerið kemur í veg fyrir að síminn sé notaður í
leyfisleysi.
Þú getur stillt símann þannig að hann biðji um lásnúmerið
sem þú hefur tilgreint. Sjálfgefið lásnúmer er 12345.
41
Haltu númerinu leyndu og á öruggum stað, fjarri
símanum.
Ef þú gleymir númerinu og síminn er læstur þarftu að leita
til þjónustuaðila. Þú gætir þurft að greiða viðbótargjald
og persónulegum upplýsingum í símanum kann að verða
eytt.
Nánari upplýsingar fást hjá Nokia Care eða seljanda
símans.
42